Pistlar | 13. desember 2019 - kl. 11:56
Dagur heilagrar Lúsíu 13. desember
Eftir Iðunni Vignisdóttur

Árlega um nær 20 ára skeið, eða frá árinu 1959 var haldin Lúsíuhátíð í Kvennaskólanum á Blönduósi. Að halda upp á dag heilagrar Lúsíu er sænskur siður, ástæðan fyrir því að hann barst norður á Blönduós er sú að á þessum tíma var starfandi dýralæknir á Blönduósi, Sverrir Markússon sem sótt hafði menntun sína til Svíþjóðar. Hann stofnaði Norræna félagið á Blönduósi, en Norræna félagið hafði þá verið starfrækt um skeið í Reykjavík og m.a. haldið upp á Lúsíuhátíðina.

Fannst Sverri að það gæti orðið skemmtilegt verkefni fyrir hið nýja félag að koma á slíkri hátíð í einhverri mynd. Samdist svo um að hátíðin skyldi haldin í samvinnu við Kvennaskólann. Konur í Norræna félaginu saumuðu hvíta kyrtla og létu smíða kertakórónu, sem vafin var með sortulyngi, er sótt var í móa í nágrenninu.

Frú Hulda Stefánsdóttir æfði Lúsíusönginn og nokkur algeng jólalög og jólasálma og stýrði stúlkunum í söng. Lúsíuhátíðin var sameinuð litlu jólunum í skólanum. Þá var ævinlega boðið nokkrum gestum, húsið var skreytt og borinn á borð jólamatur svo sem hangikjöt, rjúpur, möndlugrautur með rúsínum og saft út á, auk annarra kræsinga. Áður en borðhald hófst gengu Lúsían og meyjar hennar 6 í salinn, berandi kertaljós og sungu söngva sína. Öll ljós voru slökkt í salnum nema kertaljós og var þetta sérstaklega hátíðlegt og fallegt atriði.

Hæsta stúlkan var valin Lúsía og síðan var hinum stúlkunum raðað eftir stærð, áhersla lögð á að æfa göngulagið „hægt og rólega“ svo að ekki slokknaði á kertunum. Þær gengu í kringum matarborðið, sem var í miðjum salnum, syngjandi Lúsíusönginn, staðnæmdust svo við enda borðsins og sungu nokkur jólalög og tóku þá allir undir. Svo settust þær að veisluborðinu ásamt námsmeyjum, kennurum og gestum og allir nutu jólakræsinganna.

Eftir að Hulda Stefánsdóttir kvaddi skólann kom það í hlut Sólveigar Benediktsdóttur Sövik að æfa sönginn og leika undir. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr eigu skólans af Lúsíuhátíðum. Gaman væri að fá fleiri myndir eða endurminningar frá Lúsíuhátíðinni. Ef þið lumið á slíku má gjarnan hafa samband við okkur hér í gegnum skilaboðin á facebook.

Kveðja Iðunn Vignisdóttir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga