Brekkubyggð 21.
Brekkubyggð 21.
Fréttir | 31. desember 2019 - kl. 17:20
Brekkubyggð 21 er Jólahús ársins 2019 á Blönduósi
Valið af lesendum Húnahornsins

Lesendur Húnahornsins hafa valið Brekkubyggð 21 sem Jólahús ársins 2019 á Blönduósi. Húsið og garðurinn er fallega skreytt mörgum jólaljósum og sannarlega vel að þessari viðurkenningu komið. Eigendur hússins eru Atli Einarsson og Hafrún Halldórsdóttir. Þetta er í annað sinn sem hús við Brekkubyggð fær þessa viðurkenningu en það gerðist síðast árið 2001 eða þegar jólaleikurinn var fyrst haldinn.

Þau hús sem tilnefnd voru oftast, fyrir utan Brekkubyggð 21, voru Holtabraut 8, Garðabyggð 18, Brekkubyggð 10, Hlíðarbraut 3 og 15 og Melabraut 13. Þegar allar tilnefningar voru taldar hlaut Brekkubyggð 21 þær flestar og eru hér nokkur dæmi um umsagnir sem húsið fékk:

„Glæsileg skreyting, sérstaklega í garðinum, hreindýrin eru dásamleg“
„Skemmtilega skreytt, mikið af fallegum jólaljósum“
„Stílhreint og fallegt, hús og garður“
„Mjög jólalegt og fallegt hús“
„Virkilega fallega skreytt“

Þetta var í 18. sinn sem lesendur Húnahornsins velja Jólahús ársins á Blönduósi. Þau hús sem hlotið hafa viðurkenningu eru:

2019: Brekkubyggð 21
2018: Hólabraut 11
2017: Skúlabraut 22
2016: Aðalgata 10 (Tilraun)
2015: Skúlabraut 1
2014: Hlíðarbraut 1
2013: Heiðarbraut 1
2012: Mýrarbraut 33
2011: Melabraut 19
2010: Mýrarbraut 35
2009: Hlíðarbraut 4
2008: Hlíðarbraut 8
2007: Ekkert val
2006: Sunnubraut 3
2005: Hlíðarbraut 8
2004: Hlíðarbraut 13
2003: Garðabyggð 1
2002: Hlíðarbraut 13
2001: Brekkubyggð 17

Húnahornið óskar íbúum Brekkubyggðar 21 innilega til hamingju með viðurkenninguna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga