Tilkynningar | 03. janúar 2020 - kl. 11:07
Lýðheilsa og áhrifavaldar í Húnaþingi vestra

Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga býður áhugasömum til fyrirlesturs um lýðheilsu í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga, föstudaginn 17. janúar klukkan 18. Þar munu koma fram systurnar og knattspyrnukonurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur og ræða um andlegan styrk og mikilvægi góðrar næringar. Fyrirlesturinn er öllum að kostnaðarlausu og styrktur af Ungmennafélagi íslands, Rannís og sveitarfélaginu Húnaþingi vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga