Fréttir | 09. janúar 2020 - kl. 07:12
Fyrirlestur um selaveiðihlunnindi við Húnaflóa

Dr. Vilhelm Vilhelmsson, sagnfræðingur og forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra, heldur opinn fyrirlestur um selaveiðihlunnindi við Húnaflóa frá 17. öld til 20. aldar, í Selasetri Íslands á Hvammstanga, fimmtudaginn 16. janúar klukkan 20-21. Á fyrirlestrinum fjallar hann um sögu selveiða á Íslandi, sér í lagi við Húnaflóa og dregin upp mynd af selveiðihlunnindum sem skráð voru á jarðir á svæðinu í opinber gögn.

Þrjár jarðabækur voru gerðar með um það bil 100 ára millibili í byrjun 18. aldar, 19. aldar og 20. aldar og í öllum voru selveiðihlunnindi sérstaklega upplistuð. Fjallað verður um þessi hlunnindi og áætlað umfang selveiða líkt og það birtist í umræddum heimildum. Velt verður upp spurningum um vægi selveiða fyrir efnahag og lífsafkomu íbúa á þessu svæði og rætt um þróun viðhorfa manna til sela í ljósi þessara og fleiri sögulegra heimilda.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga