Fréttir | 13. janúar 2020 - kl. 07:23
Ís-landsmót á Svínavatni í mars

Haldið verður ísmót á Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu 7. mars næstkomandi. Keppt verður í A og B flokki gæðinga og í opnum flokki í tölti. Skráning fer fram í skráningarkerfinu Sportfeng hjá Hestamannafélaginu Neista. Skráningargjald er kr. 3.500. Vegleg peningaverðlaun fyrir efstu sætin.

Hægt er að fylgjast með og verða upplýsingar settar inn á Facebook síðuna „Ís-landsmót á Svínavatni“.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga