Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:36 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:36 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:36 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:36 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:36 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:36 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Í samgöngu- og innviðaáætlun Norðurlands vestra sem stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra samþykkti í júní í fyrra er lögð áhersla á að Blönduósflugvöllur verði skilgreindur fyrir sjúkraflug og tryggt að hann geti þjónað flugi með viðunandi hætti. „Staðsetning flugvallarins rétt við þjóðveg 1 er einnig heppileg ef kemur til hópslysa eða annarra alvarlegra óhappa í Húnavatnssýslum,“ segir í áætluninni, en hún á að nýtast sem stuðningur við forgangsröðun verkefna ríkis og stofnana ríkisins.
Í samgöngu- og innviðaáætluninni er kafli um flugsamgöngur og er þar fjallað um Alexandersflugvöll á Sauðárkróki og Blönduósflugvöll. Þar segir m.a. að mikilvægt sé fyrir íbúa Húnavatnssýslna að hafa möguleika á sjúkraflugi. Mikil skerðing heilbrigðisþjónustu í landshlutanum á undanförnum árum hafi gert það að verkum að öll bráðatilfelli þurfi að meðhöndla utan landshlutans. Til að nýta þá opinberu þjónustu sem íbúar svæðisins eigi sama rétt á og aðrir íbúar landsins sé um fjallvegi að fara og geti það verið torvelt, sérstaklega á vetrum. Þess vegna sé mikilvægt að tryggt verði að Blönduósflugvöllur geti þjónað sjúkraflugi með viðunandi hætti.
Með útgáfu áætlunarinnar vildu sveitarfélög á Norðurlandi vestra leggja sitt af mörkum til að auðvelda og flýta fyrir ákvarðanatöku og þar með brýnum framkvæmdum við samgöngu- og innviðauppbyggingu í landshlutanum. Vonuðust samtökin eftir því að áætlunin yrði stuðningur við forgangsröðun verkefna ríkis og stofnana ríkisins.
Lesa má samgöngu- innviðaáætlunina hér.
Tengdar fréttir:
Bentu ráðuneytinu á mikilvægi Blönduósflugvallar í september
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |