Fréttir | 23. janúar 2020 - kl. 10:45
Skorað á stjórnvöld vegna Blönduósflugvallar

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps skorar á stjórnvöld að tryggja að Blönduósflugvöllur fái viðhald og aðbúnað sem nauðsynlegt er svo að hann geti sinnt hlutverki sínu sem sjúkraflugvöllur. „Hér er í húfi tenging svæðisins við sjúkraflug sem er órjúfanlegur hluti af uppbyggingarhugmyndum um hátæknisjúkrahús á Landspítalareitnum,“ segir í bókun sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar í gær.

Jafnfram segir í bókuninni að flugvöllurinn verði að vera búinn þeim aðbúnaði sem nauðsynlegur sé til að hann geti þjónað íbúum og þeim fjölmörgu vegfarendum sem fara um héraðið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga