Fréttir | 23. janúar 2020 - kl. 12:45
Styrkur og þakkir fyrir ómetanlegt framlag

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps þakkar Björgunarfélaginu Blöndu fyrir ómetanlegt framlag í þágu sveitarfélagsins og íbúa þess og hefur ákveðið að styrkja félagið um 450 þúsund krónur. Þetta var ákveðið á fundi sveitarstjórnar í gær þar sem eftirfarandi bókun var samþykkt:

„Á síðustu vikum hefur geisað ofsaveður á landinu sem hafði mikil áhrif á daglegt líf íbúa m.a. á Norðurlandi vestra og enn er ekki útséð með hversu miklum skaða veðrið hefur valdið. Það er ljóst að björgunarsveitirnar gegndu veigamiklu hlutverki og án þeirra getum við ekki verið. Þegar ýmis kerfi sem áttu ekki að geta brugðist gerðu það samt, stóðu björgunarsveitirnar vaktina og voru lykilaðilar í fjölda björgunaraðgerða, jafnt smárra sem stórra. Fyrir þeirra tilstilli var hægt að sinna lágmarks velferðarþjónustu á svæðinu bæði á vegum ríkis og sveitarfélaga. Sveitarstjórn  Húnavatnshrepps þakkar björgunarsveitinni Blöndu, fyrir ómetanlegt framlag í þágu sveitarfélagsins og íbúa þess. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að styrkja Björgunarfélagið Blöndu um krónur 450.000.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga