Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:32 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:32 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:32 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:32 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:32 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:32 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
- Jóhanna Erla Pálmadóttir fjallar um frænda sinn Jón Kaldal ljósmyndara og systkini hans.
- Jóhannes Torfason tínir úr kýrhausnum fróðleiksmola frá árum Þorsteins Matthíassonar skólastjóra á Blönduósi, en á þeim árum hófst einnig útgáfa ársritsins Húnavöku sem telur brátt 60 árganga.
- Jón Benedikt Björnsson, flytur okkur fyrirlestur sinn: Afi á Húnsstöðum.
- Kaffiveitingar og kleinur.
Sögufélagið Húnvetningur stendur fyrir þessum fundi í samstarfi við FEB í A-Hún en í vor verða 82 ár síðan félagið var stofnað.
Á fyrstu áratugum félagsins kom út bókaflokkurinn Svipir og sagnir í fimm bindum. Annað stórvirki sem skreytir sögu félagsins er útgáfa á Ættum Austur-Húnvetninga í fjórum bindum, en þá stýrði Elínborg Jónsdóttir kennari á Skagaströnd félaginu og mögnuðu samstarfi með fleiri sögufélagsmönnum sem enn starfa með félaginu.
Útgáfa á söguritinu Húnaþing – í þrem bindum – var verkefni félagsins í samstarfi við fleiri félagasamtök í allri sýslunni. Fleiri rit, s.s. Brandsstaðaannáll og Saga búnaðarfélaganna í Svínavatns- og Bólstaðarhlíðarhreppum voru einnig gefin út á fyrstu árum Sögufélagsins. Samstarf við Húnvetningafélagið í Reykjavík hefur alla tíð verið náið og útgáfumál félagsins hafa oft verið nátengd því starfi.
Síðustu tíu ár hefur félagið haldið árlega fundi, aðalfund að vori og stundum svona 1-2 að auki og fengið til þeirra fyrirlesara einn eða fleiri. Síðustu árin hefur félagið einnig tekið þátt í fundaröð í Húnabúð ásamt félaginu í Reykavík og var hákarlinn þema síðastliðinn vetur. Það val var tilkomið vegna áhuga félaganna á liðveislu við Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði. Hákarlaskipið Ófeigur norðan úr Ófeigsfirði á Ströndum er þar varðveitt.
Meira til fróðleiks:
Jón Kaldal í wikipedíu: https://is.wikipedia.org/wiki/J%C3%B3n_Kaldal?fbclid=IwAR0PEVHat-qYm8jnjr6i3g6JfGKU1uaLKj5H-w3FSYEER2HqYNFmIFdizdM
Sögukorn um Jón Leifs og fleiri Jóna: https://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=16226
Byggðasafnið: http://reykjasafn.is/
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |