Fréttir | 10. febrúar 2020 - kl. 13:26
112 dagurinn á Blönduósi
Tilkynning frá viðbragðsaðilum

Hinn árlegi 112 dagur verður haldinn á morgun, 11. febrúar. Á Blönduósi ætla viðbragðsaðilar að hittast við lögreglustöðina og fara þaðan í hópakstur um bæinn. Tækin verða til sýni við lögreglustöðina að loknum hópakstrinum eða frá kl. 16:00-18:00.

Léttar veitingar í boði.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga