Ljósmynd: Róbert D. Jónsson
Ljósmynd: Róbert D. Jónsson
Fréttir | 10. febrúar 2020 - kl. 17:21
Árshátíð Blönduskóla í Félagsheimilinu á Blönduósi þann 14. febrúar

Árleg árshátíð Blönduskóla verður haldin 14. febrúar næstkomandi í Félagsheimilinu á Blönduósi. 8. - 10. bekkur mun sýna leikritið Annie og 7. bekkur mun sýna verkið Glerskóröskubusku passar ekki lengur í leikstjórn Rakelar Ýrar Stefánsdóttur.

Húsið opnar 18:30 en dagskráin hefst kl. 19:00. Að leikriti loknu verða veitingar og tónlistaratriði í danssal auk happdrættis. Því næst verður dansleikur fyrir 6. bekk og eldri til miðnættis.

Verðskrá
6. bekkur og eldri 2.500 kr.
1. - 5. bekkur greiðir 1.000 kr.
6 ára og yngri fá frítt.

Enginn posi, en stutt í næsta hraðbanka.

Vonandi sjáum við sem flesta og lofum við frábærri skemmtun.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga