Fréttir | 12. febrúar 2020 - kl. 13:29
Heimir heldur tónleika í Blönduóskirkju

Karlakórinn Heimir heldur tónleika í Blönduóskirkju fimmtudaginn 20. febrúar næstkomandi klukkan 20:30. Efnisskráin er fjölbreytt, meðal annars verða fluttir valdir kaflar úr dagskrá kórsins tileinkuð Stefáni Íslandi. Einsöngvarar eru Birgir Björnsson, Þorgeir J. Andrésson, Agnar Gunnarsson og Björn Björnsson. Stjórnandi er Stefán R. Gíslason og undirleikari er Thomas R. Higgerson.

Miðasala er við innganginn og er miðaverð kr. 4.000, eins og undanfarin ár.

Athygli er vaki á því að í auglýsingu í nýjasta tölublaði Sjónarhornsins er sagt að tónleikarnir verði fimmtudaginn 13. febrúar. Það er ekki rétt, heldur verða þeir fimmtudaginn 20. febrúar eins og áður sagði.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga