Fréttir | 14. febrúar 2020 - kl. 16:30
Rafræn íbúagátt hjá Húnaþingi vestra

Á vef Húnaþings vestra hefur verið opnuð rafræn íbúagátt. Í henni geta íbúar nálgast útgefna reikninga frá sveitarfélaginu og skráð sig inn á svæði hitaveitunnar. Þar finna þeir allar helstu upplýsingar eins og um notkun, álestra, hreyfingayfirlit, reikninga og viðskiptastöðu. Notendur skrá sig inn á íbúagáttina með íslykli. Með íbúagáttinni er sveitarfélagið að auka þjónustu við íbúa sveitarfélagsins og stuðla að umhverfisvænum rekstri. Og með henni mun Húnaþing vestra hætta útprentun hitaveitureikninga.

Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra. Þar kemur fram að einstaklingar sem vilja áfram fá senda útprentaða reikninga geta óskað eftir því með að senda póst á netfangið helena@hunathing.is.  

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga