Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:46 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:46 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:46 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:46 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:46 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:46 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Veiðisvæði Blöndu og Svartár eru komin í sölu á veiðileyfavefnum veiða.is. Veiðifélagið Starir er nýr leigutaki svæðanna og hafa miklar breytingar verið gerðar á veiðifyrirkomulaginu fyrir komandi veiðitímabil sem snúa að leyfilegu agni, kvóta og fjölda stanga. Breytingarnar eiga að stuðla að uppbyggingu svæðanna til framtíðar.
Sem dæmi þá má einungis veiða á flugu á veiðisvæðunum. Síðustu ár hefur blandað agn verið leyfilegt á hluta svæðis I í Blöndu og að öllu leyti á svæði II og III. Þá verður kvótinn í Blöndu einn lax á vakt á hverja stöng og verður laxinn að vera hængur sem er undir 68 sentímetrar að lengd.
Sú megin breyting verður gerð við fyrirkomulag veiðileyfa í Svartá fyrir komandi veiðitímabil að þegar holl eru bókuð þá er einungis greitt fyrir 3 stangir, en veiða má á 4 stangir. Eins og í Blöndu, þá er kvóti á hverri vakt, einn hængur undir 68 cm á hverja stöng og eins og áður er einungis veitt á flugu. Veiðihúsið við Svartá verður tekið í gegn fyrir komandi veiðitímabil og þarf hvert holl að greiða húsgjald og innifalið í því er uppábúið og þrif. Veiðimenn sjá um sig sjálfir í veiðihúsinu, eins og verið hefur.
Á veiða.is má finna nánari upplýsingar um veiðifyrirkomulag og reglur.
Tengdar fréttir:
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |