Fréttir | 17. febrúar 2020 - kl. 09:19
Lýðheilsa og áhrifavaldar í Húnaþingi vestra

Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga býður til fyrirlesturs föstudaginn 28. febrúar klukkan 18 í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga. Þar munu þau Þorsteinn V. Einarsson og Sólborg Guðbrandsdóttir halda fyrirlestur undir heitinu #karlmennskan og #fávitar, sem þau hafa hlotið lof fyrir víða um land. Sólborg ræðir um kynferðislega áreitni og ofbeldi sem fólk verður fyrir á samfélagsmiðlum og Þorsteinn um víðtækar hugmyndir um karlmennsku í samfélaginu og neikvæða pressu sem margir verða fyrir vegna þeirra.

Fyrirlesturinn er opinn öllum að kostnaðarlausu og er styrkur af UMFÍ, Rannís, Ungmennaráði og Húnaþingi vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga