Frá bingóinu. Ljósm: hofdaskoli.is
Frá bingóinu. Ljósm: hofdaskoli.is
Fréttir | 17. febrúar 2020 - kl. 16:09
Bingó til styrktar Krabbameinsfélagi A-Hún.

Nemendur í viðburðarstjórnun í Höfðaskóla héldu Bingó á laugardaginn. Veglegir vinningar voru í boði og einnig var hægt að kaupa veitingar í hléi. Samtals söfnuðu nemendurnir 107.700 krónum og gáfu þau allan ágóðann til Krabbameinsfélags Austur-Húnavatnssýslu. Glæsilega gert. Nemendurnir þakka þeim sem mættu kærlega fyrir stuðninginn.

Hægt er að sjá myndir frá bingóinu hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga