Jóhannes. Ljósm: hunathing.is
Jóhannes. Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 17. febrúar 2020 - kl. 16:18
Nýr slökkviliðsstjóri í Húnaþingi vestra

Jóhannes Kári Bragason hefur verið ráðinn slökkviliðsstjóri Brunavarna Húnaþings vesta frá 1. mars næstkomandi til eins árs vegna leyfis Péturs Arnarssonar slökkviliðsstjóra. Jóhannes Kári er húsasmíðameistari og hefur löggildingu sem slökkviliðsmaður. Hann hefur verið starfandi hjá Brunavörnum Húnaþings vestra frá árinu 2002 til þessa dags. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga