Þorleifur Karl, formaður SSNV og Áskell Heiðar framkvæmdastjóri Sýndarveruleika ehf. Ljósm: ssnv.is
Þorleifur Karl, formaður SSNV og Áskell Heiðar framkvæmdastjóri Sýndarveruleika ehf. Ljósm: ssnv.is
Þorleifur Karl, Sigurður, María og Berglind. Ljósm: ssnv.is
Þorleifur Karl, Sigurður, María og Berglind. Ljósm: ssnv.is
Fréttir | 17. febrúar 2020 - kl. 22:11
Viðurkenningar veittar fyrir framúrskarandi verkefni 2019 á Norðurlandi vestra

Á úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra síðastliðinn fimmtudag var í fyrsta sinn veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar annars vegar og á sviði menningar hins vegar. Sýningin 1238 á Sauðárkróki sem rekin er af fyrirtækinu Sýndarveruleika ehf. hlaut viðurkenninguna í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar og sýningin um Þórð kakala sem rekin er af Kakalaskála ehf. fékk viðurkenninguna í flokki menningar.

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra ákveða í ársbyrjun að veita árlega viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni, í tveimur flokkum sem að ofan greinir, sem farið hafa fram á Norðurlandi vestra árið áður. Alls barst 31 tilnefning um 20 verkefni.

Í umsögn stjórnar um sýninguna 1238 segir: Verkefnið er einstaklega metnaðarfullt og til þess fallið að vekja mikla athygli á landsvísu. Um er að ræða fjárfestingu af stærðargráðu sem sjaldan sést í landshlutanum þar sem nýjasta tækni er nýtt til að miðla okkar sterka sagnarfi. Með verkefninu hefur skapast fjöldi starfa auk þess sem til verður mikilvæg afþreying í ferðaþjónustu sem svo mjög hefur skort á.“

Í umsögn stjórnar um sýninguna um Þórð kakala segir: Verkefni sem hefur vaxið og dafnað undanfarin ár vegna hugsjónar og eldmóðs söguáhugamanns í landshlutanum og fjölskyldu hans. Fyrsta skrefið var verkið Grjótherinn, eitt stærsta útilistaverk landsins, þar sem hver steinn stendur fyrir einn bardagamann Haugsnesbardaga sem átti sér stað árið 1246. Því næst réðust forsvarsmenn   verkefnisins í að innrétta minkahús sem ekki voru lengur í notkun til að taka á móti gestum og halda sögustundir. Síðastliðið sumar var svo opnuð þar glæsileg sýning verka eftir 14 listamenn alls staðar að úr heiminum sem túlka lífshlaup Þórðar Kakala sem forsvarsmaður sýningarinnar kallar mesta stjórnmálamann allra tíma. Er nú boðið upp á hljóðleiðsögn um sýninguna sem er einstök á landsvísu og hefur vakið verðskuldaða athygli.“

Sagt er frá þessu á vef SSNV þaðan sem meðfylgjandi myndir eru fengnar. Á þeim má annars vegar sjá Áskel Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Sýndarveruleika ehf. og hins vegar hjónin Sigurð Hansen og Maríu Guðmundsdóttur, forsvarsmenn Kakalaskála ehf., og tengdadóttur þeirra Berglindi Þorsteinsdóttur taka á móti viðurkenningum fyrir þessi framúrskarandi verkefni. Með þeim á myndunum eru Þorleifur Karl Eggertsson, formaður stjórnar SSNV.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga