Þátttakendur á námskeiðinu. Ljósm: FB/Textílsetur Íslands
Þátttakendur á námskeiðinu. Ljósm: FB/Textílsetur Íslands
Fréttir | 18. febrúar 2020 - kl. 11:06
Námskeið í stafrænum vefnaði á Blönduósi

Námskeið í stafrænum vefnaði í TC2 vefstól var haldið í Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi um síðustu helgi en það er hluti af rannsóknar- og þróunarverkefni Textílmiðstöðvarinnar sem nefnist „Bridging Textiles to the Digital Future.“ Á námskeiðinu voru félagar úr Textílfélagi Íslands og fatahönnuður og textílkennari frá Akureyri. Kennt var hvernig hægt er að nota Photoshop forritið til að gera vefskjöl sem ofin eru í TC2 og ófu þátttakendur nokkrar prufur hver.

Námskeiðið var styrkt af Tækniþróunarsjóði Rannís og haldið til að kynna þessa stafrænu tækni fyrir textíllistafólki og hönnuðum á Íslandi. Á Facebook síðu Textílmiðstöðvar Íslands – þekkingarsetur á Blönduósi má sjá myndir frá námskeiðinu.

Textílmiðstöðin á HönnunarMars2020
Þá er gaman að segja frá því að Textílmiðstöð Íslands stendur fyrir sýningunni „Hefðbundin munstur í stafrænni framtíð“ á HönnunarMars 2020. Sýningin verður staðsett á Hlemmi í Setri Skapandi Greina og verður þar kynntur afrakstur tveggja verkefna Textílmiðstöðvar Íslands sem sýna fram á möguleika í stafrænni tækni í vefnaði og hönnun. Á sýningunni verða prufur, efni og áklæði sem eru ofin í TC2 stafrænum vefstól byggð á gömlum vefnaðarmunstrum auk nýrra hugmynda að hönnun fyrir textílvörur unnið í samstarfi Textílmiðstöðvar og Myndlistaskólann í Reykjavík. Sjá nánar á www.honnunarmars.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga