Marín Guðrún. Ljósm: stjornarradid.is
Marín Guðrún. Ljósm: stjornarradid.is
Fréttir | 18. febrúar 2020 - kl. 14:03
Húnvetningur yfir Hljóðbókasafni Íslands

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Marín Guðrúnu Hrafnsdóttur frá Skeggstöðum í Svartárdal í embætti forstöðumanns Hljóðbókasafns Íslands. Hljóðbókasafnið er ríkisstofnun undir yfirstjórn ráðherra, stofnað 1982. Hlutverk þess er að sjá þeim sem ekki geta fært sér venjulegt prentað letur í nyt fyrir bókasafnsþjónustu með miðlun á fjölbreyttu safnefni, þar á meðal námsgögnum, í sem bestu samræmi við óskir og þarfir notenda.

Hljóðbókasafn Íslands vinnur í samstarfi við aðila sem standa að skipulagningu bókasafnamála, þá sem vinna að framleiðslu og dreifingu námsefnis og þá sem starfa að málefnum blindra og sjónskertra og annarra hópa sem njóta þjónustu safnsins.

Marín Guðrún Hrafnsdóttir lauk B.A. prófi í íslensku frá Háskóla Íslands (1993), M.A. prófi í enskum bókmenntum frá Háskólanum í Leeds (1995), diplómanámi í hagnýtri fjölmiðlun frá HÍ (1996) og M.A. gráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands (2017). Hún hefur starfað sem blaðamaður, menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, verkefnastjóri hjá Lögmannafélagi Íslands og sem sjálfstætt starfandi fræðimaður. Þá er Marín varaformaður Fræðagarðs.

Sagt er frá þessi í frétt á vef Stjórnarráðsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga