Tilkynningar | 19. febrúar 2020 - kl. 12:03
Uppspuni á ferðinni
Frá Textílmiðstöð Ãslands

Hulda Brynjólfsdóttir framkvæmdastjóri Uppspuna er einn af stjórnarmönnum í Textílmiðstöðvar Íslands. Í samstarfi við Textílmiðstöðina mun Hulda koma í heimsókn fimmtudaginn 20. febrúar með garnið sitt. Hún spinnur garnið úr sinni eigin ull og ull sem hún kaupir af nágrönnum sínum. Hulda mun leggja áherslu á sokkagarnið sem reynst hefur vel og hefur vakið mikla lukku. Einnig verður hún með fullt af alls konar garni sem hún segir að gaman sé að sýna og segja frá.

Kíkið við á viðburð á Facebook; Garnkynning á Norðurlandi 3

Allir velkomnir að kíkja við á Hnitbjörgum (félagsstarf aldraðra á Blönduósi) kl. 16:00

Textílmiðstöðin og Uppspuni

www.textilmidstod.is

www.uppspuni.is

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga