Mynd: hunathing.is
Mynd: hunathing.is
Fréttir | 21. febrúar 2020 - kl. 08:21
Framkvæmdir að hefjast við viðbyggingu Grunnskóla Húnaþings vestra

Jarðvinna vegna viðbyggingar við Grunnskóla Húnaþings vestra er að fara af stað, að því er segir á vefsíðu sveitarfélagsins. Áætlað er að framkvæmdir vegna jarðvinnu standi fram á sumar. Svæðið verður afgirt með lausum girðingum og eru íbúar beðnir um að sýna aðgát í kringum vinnusvæðið og ræða við börnin um það einnig. Unnið verður að fleygun á klöpp  á virkum dögum á milli klukkan 08:00 og 18:00 og laugardaga milli klukkan 10:00 og 16:00.

Áætlað er að skólahúsnæðið verði svo tilbúið og tekið í notkun haustið 2022.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga