Tilkynningar | 21. febrúar 2020 - kl. 14:21
Háls og herðar - hóptímar

Sjúkraþjálfarar á Blönduósi ætla að bjóða upp á hóptíma fyrir einstaklinga með vandamál tengd háls- og herðasvæði. Áhersla verður á liðkandi æfingar, teygjur og styrktaræfingar. Tímarnir verða á mánudögum og fimmtudögum klukkan 12 í 5 vikur, alls 10 skipti. Athugið að hámarksfjöldi er aðeins 5 einstaklingar.

Aðgangur með beiðni um sjúkraþjálfun frá lækni. Verð fer eftir stöðu einstaklings í greiðsluþáttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands.

Allar nánari upplýsingar og skráning hjá Lisu s: 778 3837 og Ásdísi s: 848 4720.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga