Fréttir | 21. febrúar 2020 - kl. 22:12
Árlegt grímuball Blönduskóla verður á sínum stað í Félagsheimilinu á Blönduósi á öskudaginn, miðvikudaginn 26. febrúar. Húsið opnar kl. 16:15 og hálftíma síðar verður marserað, dansað, kötturinn sleginn úr tunnunni og dansað meira. Ballinu lýkur kl. 18:00.
Miðaverð er kr. 500 fyrir grímuklædda en kr. 1.000 fyrir aðra. Börn, foreldrar og aðrir bæjarbúar eru hvattir til að koma grímuklæddir á ballið.
Dagskrá:
16:15 Húsið opnar
16:45 Marsering Dans Slá köttinn úr tunnunni Dans
18:00 Lok