Gagnaver Etix Everywhere. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson
Gagnaver Etix Everywhere. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson
Fréttir | 21. febrúar 2020 - kl. 22:31
Áframhaldandi uppbygging gagnavera á Blönduósi

Eins og flestir lesendur Húnahornsins vita hefur gagna­vers­fyr­ir­tækið Etix Everywh­ere Bor­eal­is staðið í um­fangs­mik­illi upp­bygg­ingu á síðustu miss­er­um og lauk fé­lagið fram­kvæmd­um á síðasta ári við nýtt gagnaver á Blönduósi.

Í samtali við Morgunblaðið segir Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins að sam­hliða upp­bygg­ing­unni hafi fé­lagið jafn­framt lokið við um tveggja millj­arða króna fjár­mögn­un vegna henn­ar. Þessi fjár­mögn­un­in ku vera liður í áfram­hald­andi vexti félagsins á Íslandi og hafi að mestu leyti farið í gegn­um er­lenda fjár­festa.

Í Morgunblaðinu stendur orðrétt: „Björn seg­ir að und­ir­bún­ing­ur að næsta áfanga á Blönduósi sé nú þegar haf­inn og fyrsta fasa í þeirri upp­bygg­ingu sé nú að ljúka. Þar verði lögð áhersla á gagna­geymslu og of­ur­tölvu­rekst­ur. Hann seg­ir að bæj­ar­fé­lagið sé ákjós­an­leg­ur staður fyr­ir gagna­ver. Svæðið búi við ör­ugga af­hend­ingu orku, jarðfræðileg skil­yrði séu góð og hætt­an á um­hverf­is­vá mjög lít­il.

Í kynn­ing­ar­mynd­bandi fyr­ir gagna­verið má sjá að það tók aðeins fjóra mánuði að reisa húsnæðið frá því að fyrsta skóflu­stunga var tek­in og þar til það var full­reist og er það m.a. búið full­komnu kæli­kerfi. Þá kem­ur einnig fram í mynd­band­inu að í gagna­ver­inu séu staðsett­ir tutt­ugu og fimm þúsund miðlar­ar. Hér má sjá myndbandið https://www.etixeverywhere.com/iceland-hpc-blockchain-data-centers-colocation/.

Björn seg­ir jafnframt í samtali sínu við Morgunblaðið að Etix Everywh­ere Bor­eal­is hafi á síðasta ári orðið fyrsti stór­not­and­inn sem tengd­ist flutn­ings­kerfi Landsnets á tveim­ur stöðum og hafi einnig gert orku­kaupa­samn­inga við Lands­virkj­un, Orku nátt­úr­unn­ar og HS Orku.

Vanta­ge Data Centers keypti Etix Everywhere nýlega en Vantage er leiðandi fyr­ir­tæki í gagna­vers­lausn­um fyr­ir vel þekkt stór alþjóðleg tölvu­fyr­ir­tæki, skýjaþjón­ustuaðila og alþjóðleg stór­fyr­ir­tæki.

Morgunblaðið greinir einnig frá því að Vanta­ge áform­i í fram­hald­inu að fjár­festa fyr­ir um tvo millj­arða Banda­ríkja­dala í verk­efn­um í Evr­ópu.

Sjá nánar á mbl.is.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga