Fréttir | 24. febrúar 2020 - kl. 14:38
SSNV heldur vefráðstefnu á fimmtudaginn

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir vefráðstefnu næstkomandi fimmtudag, 27. febrúar klukkan 10, um tækifæri dreifðra byggða þegar kemur að svokölluðum skrifstofusetrum (e.coworking space). Ráðstefnan, sem nefnist Er vinnustaður bara hugarástand? er hluti af verkefninu Digi2Market sem styrkt er af Norðurslóðaáætlun. Í auglýsingu frá SSNV segir að meðal aðgerða í gildandi byggðaáætlun sé gert ráð fyrir að 10% allra auglýstra starfa í ráðuneytum og stofnunum þeirra verði án staðsetningar árið 2024, þannig að búseta hafi ekki áhrif við val á starfsfólki.

„Hagræði getur falist í því fyrir stofnanir og fyrirtæki að nýta skrifstofusetur, það sparast í húsnæði, aðstöðu og tækjabúnaði. Sömuleiðis er það hagræði fyrir starfsmanninn að hafa frelsi til að vinna þar sem hann kýs. Með því að veita starfsmönnum það frelsi að velja sér vinnustað og vinnutíma, þá eykst starfsánægja og hollusta þeirra við yfirmenn og fyrirtæki. Starfsmannavelta hægist og fyrirtæki þurfa ekki að þjálfa eins mikið af nýliðum með tilheyrandi kostnaði. Þeir sem vinna fjarri starfstöðvum fyrirtækis, segjast líka þjást minna af streitu. Með því að bjóða upp á vinnu utan vinnustaðar fyrirtækis eða stofnunar, þá þýðir það líka að fólk, sem býr í sveit, eða afskekkt, á jafna möguleika og aðrir til að  stunda þá vinnu,“ segir í auglýsingunni.

Dagskrá vefráðstefnunnar:

  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir – SSNV
  • Heiðar Mar - Coworking Akranes
  • Skarphéðinn Berg Steinarsson – Ferðamálastofa
  • Tryggvi Hjaltason - CCP

Áhugasömum er bent á að skrá sig hér. Sendar verða út nánari upplýsingar til þeirra sem skrá sig á viðburðinn á netfangið sem gefið er upp við skráningu.

Hægt verður að senda inn spurningar hér.


 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga