Fréttir | 25. febrúar 2020 - kl. 10:50
Hátíðardagskrá í tilefni 50 ára afmælis Húnavallaskóla

Á þessu ári eru 50 ár liðin frá formlegri vígslu Húnavallaskóla. Af því tilefni verður efnt til hátíðardagskrár laugardaginn 6. júní í sumar. Fyrrum nemendum, starfsfólki og velunnurum skólans er boðið. Dagskráin hefst klukkan 14 og endar á hátíðarkvöldverði og skemmtidagskrá um kvöldið. Í auglýsingu frá afmælisnefndinni eru áhugasamir vinsamlegast beðnir um að skrá þátttöku í kvöldverðinn fyrir 25. maí og þá er fyrrum nemendur og starfsfólk beðið um að senda myndir frá tíma þeirra í skólanum.

Hugmyndin er að láta myndirnar rúlla á tjaldi á meðan á hátíðinni stendur. Í auglýsingunni segir að góð aðstaða sé á tjaldsvæði við Húnavallaskóla og þar sé hægt að nálgast rafmagn og snyrtingu. Hægt sé að fá gistingu á hótel Húna en panta verði fyrir 15. mars næstkomandi þar sem pláss er takmarkað. Gistingu er hægt að panta á netfangið gyda@hotelhuni.com eða í síma 691 2207.

Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á netfangið 50ara@hunavallaskoli.is fyrir 25. maí nk. og myndir skulu sendar á sama netfang.

Húnavallaskóli þjónar íbúum Húnavatnshrepps. Bygging skólahússins hófst sumarið 1965 og var skólinn settur í fyrsta sinn 28. október 1969. Formlega var hann vígður 7. nóvember 1970. Upphaflega var skólinn rekinn sem heimavistarskóli en heimavistin var lögð niður í áföngum á árunum 1980 til 1982. Síðan þá hefur verið um heimaakstur nemenda að ræða. Nemendafjöldi við skólann hefur orðið mestur um það bil 180.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga