Fréttir | 26. febrúar 2020 - kl. 12:43
Opið hús í Nesi listamiðstöð

Listamenn febrúar mánaðar hjá Nesi listamiðstöð að Fjörubraut 8 á Skagaströnd bjóða til opins húss í dag klukkan 16:30-18:30. Listamennirnir eru Marie-France De Saint Mathieu, Alex Kahler, Janette Kerr, John Mulvany, Sue Ninham, Sarah Osbourne, David Sappa og Suzanne Yeremyan. Allir velkomnir.

„Það hafa verið stormasamar vikur og hafa listamennirnir brugðist við óveðrinu með því að búa til teikningar, málverk, hryllingsskáldsögur og skúlptúra úr steinum og ís,“ segir í auglýsingu frá listamiðstöðinni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga