Fréttir | 27. febrúar 2020 - kl. 14:58
Vinnustofur um matarupplifanir á Norðurstrandarleið

Á næstu vikum verða haldnar vinnustofur á Norðurlandi sem miða að því að styrkja samstarf milli framleiðenda og þeirra sem selja veitingar og matvæli á Norðurstrandarleiðinni. „Taste the Arctic Coast Way“ er vinnuheiti á verkefni þar sem áhersla er lögð á að gefa gestum Norðurstrandarleiðar tækifæri til að njóta matar úr héraði sem er framleiddur í hæsta gæðaflokki. Til að mæta væntingum gesta er markmið verkefnisins að styrkja fyrirtæki og framleiðendur á svæðinu með áherslu á staðbundin matvæli og hráefni, ýta undir árstíðabundnar áherslur í matargerð og auka sjálfbærni.

Sagt er frá þessu á vef Markaðsstofu Norðurlands. Þar segir að Norðurstrandarleið njóti nú mikillar athygli í fjölmiðlum bæði innan lands sem utan og um leið spurt: Hvernig er hægt að hagnýta þessa athygli með því að bjóða fram mat úr héraði og reyna þannig að hvetja ferðamenn til að sækja okkur heim? Matur úr héraði spilar lykilhlutverk þegar kemur að því að auka gæði og styðja við einstakar upplifanir á Norðurstrandarleið.

Á vinnustofunum verður lögð áhersla á að þróa gagnlegt efni sem fyrirtæki geta hagnýtt sér í sínum rekstri. Garðar Kári Garðarsson, yfirmatreiðslumeistari hjáá Eleven Experience – Deplar Farm í Fljótum styður við verkefnið sem leiðbeinandi en hefur hann mikla ástríðu og reynslu í því að nýta og bjóða uppá staðbundin matvæli og hráefni í samstarfi við framleiðendur á svæðinu. 

Eftirtalin áhersluatriði verða rædd á vinnustofum:
Gerð bæklings um staðbundin matvæli og framleiðendur á þínu svæði
Tengslamyndun veitingastaða, framleiðenda og ferðaskipuleggjenda/ferðaskrifstofa
Hvernig eigi að nota staðbundin og árstíðabundin hráefni
Hvernig sé hægt að taka þátt í verkefninu „Taste the Arctic Coast Way“
Hvernig eigi að markaðssetja staðbundin matvæli og hvaða sögu skuli segja
Hvernig á að skapa matarupplifun?
Hvað er matarvegabréf Norðurstrandarleiðar og hvernig er hægt að taka þátt?
Vinnustofurnar miða að því að styrkja samstarf milli framleiðenda og þeirra sem selja veitingar/matvæli á Norðurstrandarleiðinni. Á meðan veitingastaðir og kaffihús verða að vera meðlimir Norðurstrandarleiðarinnar geta framleiðendur verið staðsettir hvar sem er á Norðurlandi.

Vinnustofurnar eru ætlaðar eigendum veitingastaða og kaffihúsa, matreiðslufólki og framleiðendum matvæla og verða á eftirfarandi dögum á sex stöðum á Norðurstrandarleið:

18. mars, 15-18: Brimslóð Atelier Guesthouse, Blönduós
19. mars, 15-18: Jarlsstofa, Hótel Tindastóll, Sauðárkróki
25. mars, 15-18: Menningarhúsið Berg, Dalvík
26. mars, 15-18: Rósenborg, Akureyri
7. apríl, 15-18: Ytra Lón, Þórshöfn
8. apríl, 15-18: Tungulending, Húsavík

Hægt er að skrá sig hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga