Fréttir | 23. mars 2020 - kl. 20:04
Samráðshópur um áfallahjálp virkjaður

Samráðshópur um áfallahjálp í Húnavatnssýslum hefur verið virkjaður vegna Covid-19 smits í Húnaþingi vestra. Í hópnum eru fulltrúar frá Rauða krossinum, þjóðkirkjunni, félagsþjónustu, heilsugæslu og lögreglu og hafa þeir verið í sambandi við skjólstæðinga og viðbragðsaðila. Íbúum á svæðinu er velkomið að hringja í fulltrúa hópsins varðandi ýmis úrlausnarefni eða beiðni um sálrænan stuðning. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Húnaþings vestra.

Vegna álags á heilsugæslu HVE á Hvammstanga er æskilegra að beiðnum um sálrænan stuðning sé beint annað um sinn, svo sem til Rauða krossins eða félagsþjónustunnar. Hins vegar ef um bráð andleg veikindi er að ræða skal hringja í eitthvert eftirtalinna símanúmera: 432-1300, 1700, 112.

Símanúmer og/eða netföng einstakra stofnana eða fulltrúa þeirra sem velkomið er að hringja í: 

Hjálparsími RKÍ 1717.

Þjóðkirkjan – sóknarpresturinn á Hvammstanga s. 867-2278.
Netfang: srmagnus@simnet.is.

Þjóðkirkjan – sóknarpresturinn á Skagaströnd s. 860-8845.
Netfang: bryndis.valbjarnardottir@gmail.com.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga s. 432-1300.
Netfang: sesselja.eggertsdottir@hve.is.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi s. 455-4100.
Netfang: sigridurs@hsn.is.

Fjölskyldu- og fræðslusvið Húnaþings vestra s. 771-4966.
Netfang: jenny@hunathing.is.

Félagsþjónusta Austur-Húnavatnssýslu s. 863-5013.
Netfang: felagsmalastjori@felahun.is.

Í tilkynningunni færir samráðshópurinn kærar þakkir til heilbrigðisstarfsfólks og allra viðbragðsaðila fyrir mikla og óeigingjarna vinnu „en ljóst er að mikið og öflugt starf hefur verið unnið á stuttum tíma við sérstakar og oft á tíðum afar erfiðar aðstæður.“ Einnig þakkar hópurinn íbúum fyrir stuðning og „hjálpsemi við náungann, sem einkennist af samstöðu og samkennd, þolinmæði og þrautseigju, æðruleysi og einingu.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga