Höfðaskóli
Höfðaskóli
Fréttir | 25. mars 2020 - kl. 21:30
Höfðaskóli opnar á ný

Sýni sem tekið var á Skagaströnd vegna hugsanlegs Covid-19 smits reyndist neikvætt. Höfðaskóli var lokaður í dag í varúðarskyni vegna gruns um smit en í ljósi þessara gleðilegu tíðinda getur skólinn opnað aftur á morgun. Sama fyrirkomulag verður á kennslu og í byrjun vikunnar. Yngsta stig og unglingastig mæta í skóla en miðstig verður heima.

 Þetta kemur fram á vef Höfðaskóla.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga