Fréttir | 27. mars 2020 - kl. 12:57
Reglur um sóttkví gilda líka í sveitinni

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra og almannavarnanefndir svæðisins vekja athygli á því í auglýsingu að reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan á sóttkví stendur. Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara út fyrir sumarhúsið nema brýna nauðsyn beri til, mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum, þar á meðal í matvöruverslun og mega ekki fara sjálfir með sorp á móttökustöðvar sveitarfélaga. Þeir mega fara í göngutúra eða bíltúra, en gæta þarf að því að halda reglur um fjarlægð frá öðrum.

„Njótum þess að vera í sveitinni en fylgjum reglum og vinnum saman að því að koma í veg fyrir smit. Athygli er vaki á því að brot á reglum um sóttkví varðar við lög,“ segir í auglýsingunni frá lögreglustjóranum og almannavarnarnefndum á Norðurlandi vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga