Fréttir | 27. mars 2020 - kl. 21:33
Úrvinnslusóttkvíin felld úr gildi á miðnætti

Aðgerðarstjórn almannavarna á Norðurlandi vestra hefur tilkynnt að úrvinnslusóttkví sú sem sett var á í Húnaþingi vestra þann 21. mars síðastliðinn verði felld úr gildi frá og með miðnætti, föstudaginn 27. mars 2020. Jafnframt gilda frá nefndu tímamarki almennar reglur um samkomubann sem settar voru af sóttvarnalækni og gilda fyrir landið allt. Eftir sem áður vill aðgerðastjórnin beina því til almennings að gæta almennra sóttvarna og virða þær reglur og viðmið sem gefin hafa verið út af sóttvarnalækni til hins ýtrasta.

Þetta kemur fram á vef Húnaþings vestra. Þar segir: „Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra vill færa íbúum Húnaþings vestra sérstakar þakkir fyrir að hafa sýnt skilning, þolinmæði, samvinnu og að hafa brugðist vel við þeim aðstæðum sem úrvinnslusóttkví hefur haft í för með sér fyrir íbúa svæðisins og starfsemi innan sveitarfélagsins.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga