Tilkynningar | 28. mars 2020 - kl. 09:02
Takmörkun á umgengni
Frá Félags- og skólaþjónustu A-Hún.

Kæru íbúar og gestir í Hnitbjörgum. Vegna yfirstandandi heimsfaraldurs COVID-19 og samkomubanns Sóttvarnalæknis er mikilvægt að íbúar takmarki verulega komur gesta og umgengni í sameiginlegu rými Hnitbjarga. Þá eru gestir beðnir um að gera boð á undan sér og vera einir á ferð.

Starfsmenn Félags- og skólaþjónustunnar geta leiðbeint og aðstoðað íbúa við að koma upp myndsímtölum við aðstandendur hafi íbúar aðgang að snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu með myndavél.

Endilega hafið samband ef eitthvað er óljóst

Bestu kveðjur

Ásdís Ýr Arnardóttir, félagsmálastjóri
Sími: 455-4171 og 863-5013

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga