Fréttir | 31. mars 2020 - kl. 12:48
Vefráðstefna um úrgangsmál á Norðurlandi

Á morgun fer fram vefráðstefna um úrgangsmál á Norðurlandi. Ráðstefnan, sem er öllum opin, er lokahnykkurinn á störfum starfshóps Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra sem hafði til skoðunar framtíðarskipan úrgangsmála á Norðurlandi. Í vinnu hópsins var fjallað um úrgangsmál svæðisins og m.a. greindir úrgangsstraumar og tækifæri til að ná auknum árangri og hagræðingu í málaflokknum.

Á ráðstefnunni verða haldin fjölmörg áhugaverð erindi, m.a. um niðurstöður greiningar á úrgangsmálum á Norðurlandi, útflutning á sorpi, afsetningu lífræns úrgangs, úrgangsstjórnun hjá fyrirtækjum, líforkuver, smartvæðingu sorps, hringrásarhagkerfið, sjónarhorn sveitarfélags og fyrirtækis sem hafa náð árangri í úrgangsmálum o. fl. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra mun opna ráðstefnuna.

Athugið að ráðstefnan fer fram á netinu. Slóð á viðburðinn verður birt á viðburðasíðu ráðstefnunnar á Facebook og á Facbook síðum SSNV og SSNE.

Dagskrá:

13:00 Ávarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra.
13:15 Getum við gert betur? staða og framtíð sorpmála á Norðurlandi. Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings.
13:40 Er útflutningur sorps raunhæfur möguleiki? Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins.
14:00 Afsetning lífræns úrgangs. Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska.
14:20 Nýjar leiðir í endurvinnslu á plasti. Sigurður Halldórsson, framkvæmdastjóri Pure North
14:40 Líforkuver - raunhæfur kostur? Guðmundur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vistorku.
15:00 Hlé.
15:10 Er verið að gera eitthvað nýtt í úrgangsmálum á Íslandi? Karl Eðvaldsson, forstjóri ReSource International ehf.
15:30 Aðkoma sveitarfélaga að innleiðingu hringrásarhagkerfisins. Eygerður Margrétardóttir, sérfræðingur, Sambandi ísl. sveitarfélaga.
15:50 Meðhöndlun sorps hjá Brim. Torfi Þ. Þorsteinsson, forstöðmaður samfélagstengsla.
16:10 Árangursríkt sorpkerfi á Akureyri Rut Jónsdóttir, forstöðumaður hjá Akureyrarbæ.
16:30 Ráðstefnulok.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga