Fréttir | 01. apríl 2020 - kl. 18:23
Gjöf til Hnitbjarga
Frá félagsmálastjóra A-Hún.

Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi brugðust við ákalli félagsmálastjóra A-Hún. um afnot af spjaldtölvum með því að færa Hnitbjörgum að gjöf spjaldtölvu og heyrnatól fyrir íbúa. Er það von Hollvinasamtakanna að búnaðurinn komi að góðum notum fyrir heimilisfólkið, svo það geti haft samband við ættingja og vini með myndsamtölum, sér á lagi á meðan heimsfaraldur Covid-19 gengur yfir.

Félagsmálastjóri tók við gjöfinni fyrir hönd Hnitbjarga og er tölvan komin í notkun meðal íbúa. Félags- og skólaþjónustan, fyrir hönd Hnitbjarga, færir Hollvinasamtökunum bestu þakkir gjafmildina og hvetur íbúa svæðisins til að styðja við Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga