Fréttir | 02. apríl 2020 - kl. 08:52
Samkomulag um fjárstuðning vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur

Vinnumálastofnun og stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga hafa gert samkomulag við Bændasamtök Íslands um fjárstuðning vegna afleysingaþjónustu fyrir bændur sem veikjast af kórónuveirunni og geta af þeim sökum ekki sinnt bústörfum. Samkomulagið er afturvirkt frá 15. mars og gildir til og með 31. maí næstkomandi. Samkvæmt samkomulaginu geta bændur sem veikjast af veirunni ráðið til sín starfsfólk sem verktaka til að sinna afleysingum, að hámarki í 14 daga.

Búnaðarsambönd deila verktökum niður, hvert á sínu svæði, og sjá um greiðslur til þeirra. Leitast verður eftir að ráða verktaka úr hópi einstaklinga sem eru skráðir atvinnuleitendur í viðkomandi umdæmi. Bændasamtök Íslands halda saman útgjöldum búnaðarsambandanna vegna þessa verkefnis auk þess sem þau fá greiddan fjárstuðning til sín og hafa milligöngu um uppgjör við búnaðarsamböndin þegar verkefninu er lokið. Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga mun standa undir fjárstuðningi til Bændasamtaka Íslands og útgjöld vegna þessa verkefnis verða gjaldfærð hjá sjóðnum.

Samkomulagið var gert eftir tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra. Í tilkynningu segir hann að bændur séu ekki undanskildir áhrifum veirunnar og það geti haft mikil áhrif á afkomu þeirra til frambúðar ef þeir veikjast og geti ekki sinnt bústörfum. „Það er því gríðarlega mikilvægt að við stígum inn í og hjálpum þeim að tryggja áframhaldandi starfsemi á sínum búum. Þetta á sérstaklega við núna þegar styttist í að sauðburður hefjist ásamt því að bændur eru almennt að sinna vorverkum sem leggja grunninn að framleiðslu ársins. Á þessum tímum er því enn mikilvægara að styðja vel við þá, og tryggja þannig að við höldum áfram að framleiða allan þann mat í landinu sem við sem þjóð getum,“ segir Ásmundur Einar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga