Ljósm: stjornarradid.is
Ljósm: stjornarradid.is
Fréttir | 03. apríl 2020 - kl. 13:15
Samkomubann framlengt vegna COVID-19

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja til 4. maí þær takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem áttu að falla úr gildi 13. apríl næstkomandi. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að þótt vel hafi gengið að halda útbreiðslu smita í skefjum valdi áhyggjum hve alvarlega veikum einstaklingum hafi fjölgað hratt sem hafi þurft á gjörgæslu að halda.

„Nú skiptir öllu máli að við höldum áfram að standa saman sem einn maður, fylgja fyrirmælum okkar besta fagfólks og koma þannig í veg fyrir að álag á heilbrigðiskerfið fari yfir þolmörkin“ segir heilbrigðisráðherra.

Takmörkunum verði aflétt í áföngum

Engar breytingar verða á gildandi takmörkunum á samkomum og skólahaldi aðrar en framlengdur gildistími til 4. maí. Á tímabilinu verður undirbúin áætlun um hvernig best megi standa að því að aflétta gildandi takmörkunum í áföngum. Stefnt er að því að kynna þau áform fyrir lok þessa mánaðar.

Veittar undanþágur halda gildi

Undanþágur sem veittar hafa verið frá takmörkunum á samkomum og skólahaldi munu halda gildi sínu sem nemur framlengingu aðgerða, þ.e. til 4. maí næstkomandi. Áréttað er að undanþágur eru því aðeins veittar að mikið sé í húfi, þ.e. í þágu allsherjarreglu, öryggis ríkisins eða til verndar lífi eða heilsu.

Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.

Frétti hefur verið uppfærð

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga