Fréttir | 06. apríl 2020 - kl. 10:30
Vinsælar vinnustofur á netinu

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra stóðu í síðustu viku fyrir vinnustofum á netinu í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Voru þær hluti af verkefninu Digi2Market og fjölluðu um hvernig auka megi sölu í gegnum netið. Notast var við fjarfundarforrit og þeim streymt á Youtube síðu samtakanna. Yfir 50 fyrirtæki skráðu sig til leiks, rúmlega 35 tóku gagnvirkan þátt og um 68 hafa horft á streymið, segir á vef SSNV.

Og þar segir: „Því er vel hægt að halda því fram að viðburðinn hafa tekist einstaklega vel og hefur SSNV, auk NMÍ, áhuga á að fylgja þessu framtaki eftir með fleiri vinnustofum á netinu. Kallað er eftir ábendingum um efni sem fyrirtæki og einstaklingar í rekstri telja að þörf sé á. Hægt er að senda inn ábendingar og tillögur inn á netfangið ssnv@ssnv.is.“

Vinnustofurnar eru aðgengilegar á vef SSNV og á Youtube síðu samtakanna.

Sjá einnig nánari umfjöllun á vef SSNV.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga