Fréttir | 08. apríl 2020 - kl. 13:52
Sviðsmyndir atvinnulífs á Norðurlandi vestra

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa birt á vef sínum sviðsmyndir atvinnulífs á Norðurlandi vestra til ársins 2040 sem unnar voru af KPMG í tengslum við gerð nýrrar sóknaráætlunar landshlutans á síðasta ári. Dregnar eru upp fjórar mismunandi sviðsmyndir af stöðu mála í landshlutanum árið 2040 út frá ólíkum forsendum. 

Á vef SSNV segir að sviðsmyndirnar hafi verið unnar með aðkomu atvinnulífs og íbúa á svæðinu síðari hluta árs 2019. „Þó ástandið í heiminum hafi verið ólíkt því sem það er nú þegar mesta vinnan fór fram eiga þær engu að síður jafn vel við í dag og geta hjálpað til við ákvarðanatöku á þessum erfiðu tímum. Það sem við gerum í dag hefur áhrif á framtíð okkar og því getur verið gagnlegt að hafa sviðsmyndir sem þessar til að máta ákvarðanir sem teknar eru við,“ segir á vefnum.

Í sviðsmyndunum er gengið út frá tveimur megin grunngerðum. Annars vegar þróun menntunar og færni, hvort hún verður íhaldssöm eða framsækin en menntun og færni íbúa hefur mikil áhrif á stöðu og þróun atvinnulífs. Hins vegar er horft á þróun atvinnustarfsemi, hvort áhersla verður lögð á magn eða á gæði og þá litið til þess hvort þróun atvinnustarfsemi verður í átt að virðisauka, t.d. með nýsköpun og vöruþróun eða með áherslu á magn t.d. í fjölda ferðamanna, framleiddra eininga og fleira í þeim dúr. 

Sviðsmyndirnar voru eins og  áður kom fram unnar samhliða vinnu við gerð nýrrar sóknaráætlunar en þar kemur einmitt skýrt fram áhersla á aukinn virðisaukningu í atvinnustarfsemi m.a. með aukinni fullvinnslu afurða í héraði. Tenging milli þessara mikilvægu plagga er því ótvíræð.

Á vef SSNV segir að sviðsmyndirnar geti verið gagnlegt tæki við stefnumótun af ýmsum toga, bæði fyrir fyrirtæki á starfssvæðinu sem og sveitarfélög og stuðningsstofnanir þeirra. Þær geti nýst í tengslum við vinnu við byggðaþróun og skipulagsmál, fjárfestingaákvarðanir og áhættugreiningar auk þess að styðja við sóknaráætlun landshlutans.

Til stóð að kynna sviðsmyndirnar á ársþingi samtakanna sem halda átti 17. og 18. apríl sem hefur í ljósi aðstæðna verið frestað um óákveðinn tíma. Ráðgjafar KPMG sem unnu sviðsmyndirnar hafa þess í stað sett saman stutta kynningu sem er nú aðgengileg á vef SSNV. 

Sviðsmyndirnar og kynningu á þeim er að finna hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga