Vatnsdalur. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson
Vatnsdalur. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson
Fréttir | 24. apríl 2020 - kl. 15:45
Samstaða um helstu hagsmunamál Húnvetninga

Húnvetningur er nýtt verkefnaheiti á vinnu sameiningarnefndar sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu. Í tilkynningu frá nefndinni segir að eitt meginmarkmið verkefnisins Húnvetnings sé að koma helstu hagsmunamálum Austur-Húnvetninga á framfæri við stjórnvöld. Sameiningarnefndin hafi á fundum sínum fjallað um helstu styrkleika, veikleika, áskoranir og tækifæri svæðisins og íbúa og að samstaða sé um það meðal sveitarfélaganna að brýnustu verkefni næstu missera séu á sviði atvinnu- og samgöngumála.

Í tilkynningunni segir:

„Austur-Húnavatnssýsla hefur átt undir högg að sækja undanfarna áratugi og mikilvægt er að setja mikinn kraft í atvinnuþróun og byggðaaðgerðir. Markmið Húnvetninga er stuðla að fjölbreyttum störfum og atvinnulífi í samræmi við Stefnumótandi byggðaáætlun og ætla að sækja stuðning stjórnvalda við þá sókn. Í því felst meðal annars að byggja upp sterka segla í ferðaþjónustu í Austur-Húnavatnssýslu og fjölga opinberum störfum, bæði staðbundnum og án staðsetningar. Mikilvægt er að fylgja skýrri atvinnustefnu og auka tiltrú fjárfesta og fjármálastofnana á verkefnum í sýslunni.

Samstaða er um að leggja áherslu á að framkvæmdum við Þverárfjallsveg um Refasveit og Skagastrandarveg frá þjóðvegi 1 að Laxá verði kláraðar fyrir árslok 2022, en hönnun vegarins er hafin.  Þá leggja sveitarstjórnirnar áherslu að auknu fé verði varið til að endurbætur og bundið slitlag á tengivegi á árunum 2020-2024. Tengivegir í sýslunni eru um 270 km og eru um 170 km þeirra malarvegir. Hálendisvegir eru um 165 km og eru þeir alfarið malarvegir, þ.m.t. Kjalarvegur. Heilsársvegur um Kjöl myndi skapa mikil sóknartækifæri í atvinnumálum.

Til að bæta öryggi vegfarenda er lögð áhersla á endurbætur á hringtorgi við Blönduós og að Blönduósflugvöllur geti þjónað sjúkraflugi með viðunandi hætti. Þá er samstaða um að tryggja fjármagn í hafnarframkvæmdir á Skagaströnd og sjóvarnir í sýslunni, en miklar skemmdir urðu á hafnarmannvirkjum í óveðrum vetrarins og því liggur meira á framkvæmdum en áður var talið.“ 

Þá segir í tilkynningunni að áætlað sé að fulltrúar sveitarfélaganna fundi með þingmönnum og ráðherrum um helstu hagsmunamál Húnvetninga í sumar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga