Sólarlag við Húnaflóa. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson.
Sólarlag við Húnaflóa. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson.
Fréttir | 15. maí 2020 - kl. 13:22
Átaksverkefni á Norðurlandi vestra valin

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur ákveðið hvaða verkefni verða styrkt í tengslum við átaksverkefni í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Alls bárust 90 hugmyndir með áætlaðan heildarkostnað á bilinu 250-300 milljónir króna. Til ráðstöfunar voru 50 milljónir, ásamt því sem farið var í endurskilgreiningu fyrri verkefna. Af þeim 90 hugmyndum sem bárust hafa sumar þeirra verið sameinaðar í stærri verkefni sem ná yfir allt Norðurland vestra, svo sem í tilfelli gönguleiða og skiltamála.

Á fundi samtakanna á þriðjudaginn tók stjórnin afstöðu til innsendra hugmynda. Í bókun sinni lýsir stjórn SSNV yfir ánægju sinni yfir þeim krafti og hugmyndaauðgi sem fram kemur í þeim fjölda hugmynda sem bárust. Jafnframt vill hún hvetja forsvarsmenn þeirra verkefna sem ekki fengu brautargengi til að vinna hugmyndir sínar áfram og eru atvinnuráðgjafar SSNV til þjónustu reiðubúnir varðandi vinnslu verk- og viðskiptaáætlana, styrkumsóknir o.fl.

Þau verkefni sem samþykkt voru eru eftirfarandi:

Verkefni til eflingar ferðaþjónustu, samtals 22,2 milljónir
Matur, menning og músik, sjónvarpsþættir
Hnitsetning og merking gönguleiða
Framleiðsla á stuttum myndböndum og markaðsefni ætluðu samfélagsmiðlum
Skilti og merkingar
Uppskrift að góðum degi á Norðurlandi vestra, sjónvarpsþættir
Stafræn leiðsögn (með Markaðsstofu Norðurlands)

Atvinnuþróun- og nýsköpun, samtals 17,5 milljónir
Sölubíll fyrir vörur smáframleiðenda á svæðinu
Stafræn leiðsögn um sýningar og sögustaði
Miðstöð stafrænnar afritunar
Stafrænt móttökuverkstæði
Glatvarmaverkefni (viðbót við þegar skilgreint áhersluverkefni)

Mennta og menningarverkefni, samtals 8 milljónir
Nýting upplýsingatækni í skólastarfi
Stafræn miðlun viðburða
Barnamenningarhátíð (viðbót við þegar skilgreint áhersluverkefni)

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga