Tilkynningar | 20. maí 2020 - kl. 08:06
Breyttir opnunartímar - bókasafnið opið á laugardögum
Tilkynning frá Héraðsbókasafni A-Hún.

Stundum er gott að breyta til, og nú langar okkur að prófa breytingar á opnunartímum bókasafnsins. Minni aðsókn hefur verið eftir kl. 17:00 undanfarið og svo virðist vera erfitt fyrir fjölskyldur að koma á safnið á virkum dögum. Því hafa opnunartímar bókasafnsins verið breytt og eru nú eftirfarandi:

Mánudaga, miðvikudaga & fimmtudaga: 13:00 – 17:00
Þriðjudaga: 10:00 – 16:00 (óbreytt)
Svo verður einnig opið fyrsta laugardag í mánuði kl. 13:00 – 17:00.

Fyrsta laugardagsopnun verður þann 6. júní, laugardaginn eftir Hvítasunnu.

Minnum á að einnig er hægt að fá lánuð spil á bókasafninu, við bætum alltaf nýjum spilum inn í safnið 😊. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga