Á útsýnispallinum við Kolugljúfur sem var settur upp með framlagi úr sjóðnum. Ljósm: ssnv.is
Á útsýnispallinum við Kolugljúfur sem var settur upp með framlagi úr sjóðnum. Ljósm: ssnv.is
Fréttir | 20. maí 2020 - kl. 11:19
Stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða heimsótti Norðurland vestra

Stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og starfsmenn Ferðamálastofu, sem annast málefni sjóðsins, voru í byrjun vikunnar á ferð um Norðurland vestra. Hópurinn heimsótti á mánudaginn nokkra af þeim stöðum sem hafa verið í umsóknarferli hjá sjóðnum í síðustu úthlutunum og eru ýmist í gangi sem verkefni eða þegar lokið. Í gær tók hópurinn svo þátt í samráðsfundi sveitarfélaga svæðisins og Fagráðs ferðaþjónustunnar á Norðurandi vestra, sem haldin er tvisvar á ári.

Sagt er frá þessu á vef SSNV. Þar kemur fram að hópurinn hafi verið ánægður með ferðina. Ítrekaði hann, ásamt fundarmönnum í gær, mikilvægi þess að aðstandendur sjóðs sem þessa, komi og kynni sér staðhætti tengdum þeim verkefnum sem eru í meðförum sjóðsins.

„Nokkur umræða skapaðist í vetur um rýrar heimtur Norðurlands vestra í síðustu úthlutun og því alveg ljóst að samtal á borð við þetta kemur sér vel fyrir báðar hliðar. Sem stendur liggur frumvarp um breytingar á lögum um sjóðinn fyrir Alþingi, en óháð því er stefnt að því að umsóknarferli sjóðsins verði fyrr en verið hefur síðustu á eða strax í september,“ segir á vef SSNV.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga