Nýjasta afurð Vilko - Amerískar pönnukökur.
Nýjasta afurð Vilko - Amerískar pönnukökur.
Fréttir | 25. maí 2020 - kl. 09:19
Rekstrartekjur Vilko hækka um 23% milli ára

Aðalfundur Vilko var haldinn föstudaginn 15. maí síðastliðinn. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að rekstratekjur námu 266 milljónir króna árið 2019 og hækkuðu um 23% milli ára. Rekstargjöld fyrir fjármagnsliði námu 259 milljónir og jukust um 14% milli ára. Minniháttar tap var á rekstri félagsins eða rúmar tvær milljónir króna. Alls greiddi Vilko 90 milljónir í laun og launatengd gjöld í fyrra. Hjá félaginu starfa að jafnaði 12-15 starfsmenn.

Að sögn Kára Kárasonar, framkvæmdastjóra Vilko, hefur vinnsla og sala gengið vel sem af er þessu ári þrátt fyrir að sala til stóreldhúsa og veitingarhúsa hafi nær alveg stöðvast. Mikil söluaukning hefur verið á klassískum Vilko vörum og Prima kryddum undanfarna mánuði.

Í fyrra var hafin bygging að 160 fermetra viðbyggingu, sem mun nýtast sem móttöku- og afgreislusalur. Kári segir að nýja viðbyggingin muni breyta allri vinnuaðstöðu þar sem vörur séu meðhöndlaðar og geymdar á brettum en jafnframt verði sett upp vörulyfta til að flytja vörur milli hæða.

Kári segir einnig að stöðugt sé unnið að vöruþróun og nýjungum. Nýjasta afurðin sé Amerískar pönnukökur sem þykir hafa heppnast gríðarlega vel.

Stjórn Vilko skipa þau Jóhannes Torfason sem er formaður stjórnar, Guðbjörg Óskarsdóttir, Ólafur Johnson, Ágúst Sindri Karlsson og Jón Gíslason.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga