Ljósm: blonduos.is/Róbert Daníel Jónsson.
Ljósm: blonduos.is/Róbert Daníel Jónsson.
Fréttir | 27. maí 2020 - kl. 15:08
Hreinsunarátak í Blönduósbæ

Blönduósbær efnir til hreinsunarátaks næstu daga. Íbúa og fyrirtæki er hvött til sameiginlegs átaks í hreinsun í sínu nærumhverfi. Eigendum bíla og stærri málmhluta sem standa á Blönduósi býðst næstu tvær vikur aðstoð við að færa þá til förgunar þeim að kostnaðarlausu.

Þeir sem vilja nýta sér átakið þurfa að láta vita á netfangið: blonduos@blonduos.is fyrir 5. júní næstkomandi og skila inn upplýsingum um hvað á að fjarlægja, hvar það stendur og hver sé eigandinn.

Gámaplanið er opið þrisvar í viku, mánudaga og miðvikudaga frá klukkan 15-17:30 og á laugardögum frá klukkan 13-17.

Mánudaginn 1. júní, annan í hvítasunnu, verður aukaopnun frá klukkan 13-17.  Íbúar verða aðstoðaðir við að flokka úrgang á gámaplaninu og ef veður leyfir verður boðið uppá kaffi og kleinur laugardaginn 30. maí og mánudaginn 1. júní.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga