Tillaga að stækkun verknámshús FNV á Sauðárkróki. Mynd: Stoð verkfræðistofa.
Tillaga að stækkun verknámshús FNV á Sauðárkróki. Mynd: Stoð verkfræðistofa.
Fréttir | 27. maí 2020 - kl. 15:20
Ný viðbygging kostar um 720 milljónir

Áform um viðbyggingu verknámshúss Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki hafa verið uppi um langt skeið, enda brýn þörf á stærra húsnæði. Fyrirhuguð stækkun hefur nú verið kynnt fyrir sveitarfélögunum á Norðurlandi vestra, sem greiða 40% kostnaðarins og ríkið greiðir 60%. Samkvæmt þeim teikningum sem lagðar hafa verið fram, er um að ræða 1.200 fermetra viðbyggingu og er kostnaðurinn áætlaður um 720 milljónir króna, að því er fram kemur á N4.is.

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra tekur vel í fyrirhugaða stækkun og sveitarfélögin hafa verið beðin um að taka afstöðu til hennar. Í dag bókaði byggðaráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar jákvætt í erindið, en Sveitarfélagið Skagafjörður greiðir 55% þess kostnaðar sem kemur í hlut sveitarfélaganna.

Tengd frétt:
Vilja að sveitarfélög og ríkið komi saman að viðbyggingu við verknámshús FNV

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga