Við undirritun viljayfirlýsingarinnar. Ljósm: Feykir.is
Við undirritun viljayfirlýsingarinnar. Ljósm: Feykir.is
Fréttir | 28. maí 2020 - kl. 10:20
Viljayfirlýsing um uppbyggingu koltrefjaframleiðslu í Skagafirði

Í gær var undirrituð viljayfirlýsing um uppbyggingu koltrefjaframleiðslu í Skagafirði. Í tilkynningu sem birt er á vef Feykis segir að viljayfirlýsingin sé í samræmi við stefnu stjórnvalda um eflingu nýfjárfestinga í íslensku atvinnulífi og samkeppnishæfni Íslands á sviði nýfjárfestinga, sérstaklega á dreifbýlum svæðum líkt og á Norðurlandi vestra.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu í gær en í henni kemur fram að stjórnvöld munu vinna með Sveitarfélaginu Skagafirði að innviðauppbyggingu á svæðinu með það að markmiði að fá mannaflsfreka og umhverfisvæna fjárfestingu inn á svæðið. Liður í þeirri uppbyggingu er m.a. að tryggja raforkuöryggi á svæðinu með Sauðárkrókslínu 2 en framkvæmdir við lagningu hennar hófust í vor.

„Sveitarfélagið Skagafjörður í samvinnu við menntastofnanir og hagsmunaaðila á svæðinu hafa verið leiðandi á Íslandi í rannsóknum og undirbúningi að uppbyggingu koltrefjaframleiðslu á Íslandi. Er það stefna Sveitarfélagsins Skagafjarðar að vera í fararbroddi á Íslandi á sviði trefjaframleiðslu og tengdrar starfsemi,“ að því er segir í tilkynningu.

Á meðfylgjandi mynd sem fengin er af vef Feykis eru F.v. Gísli Sigurðsson, oddviti Sjálfstæðismanna, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Stefán Vagn Stefánsson, oddviti Framsóknarmanna og Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Svf. Skagafjarðar. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga