Fréttir | 06. júní 2020 - kl. 09:48
Golfnámskeið í Vatnahverfi um næstu helgi

Þórður Rafn Gissurarson atvinnukylfingur verður með golfnámskeið á Blönduósi helgina 12.-14. júní næstkomandi. Boðið verður upp á byrjendanámskeið, krakkanámskeið, hóp- og einkakennslu og námskeiðið Æfðu eins og atvinnukylfingur. Þórður er 32 ára að aldri og hefur stundað golf frá því hann var sex ára. Hann gerðist atvinnukylfingur 25 ára og hefur spilað mestmegnis á þýsku Pro Golf Tour atvinnumótaröðinni.

Byrjendanámskeiðið er ætlað þeim sem vilja komast í golfíþróttina eða eru nýbyrjuð að spila golf en hafa ekki lært undirstöðuatriðin og tæknina. Farið verður í alla þætti leiksins, þ.e. sveifla, pútt, vipp, járnhögg og teighögg. Námskeiðið er alls 4 klukkustundir. Lágmark þrír og hámark 6 í hóp. Þátttakendur þurfa ekki að eiga kylfur. Tvö byrjendanámskeið eru í boði. Námskeið 1 fer fram laugardag og sunnudag frá klukkan 9-11 og námskeið 2 fer fram laugardag og sunnudag frá klukkan 13-15. Skráning á netfangið golfkennslatrg@gmail.com. Námskeiðið kostar 15.000 krónur.

Krakkanámskeiðið er á léttu nótunum fyrir 6-14 ára krakka sem vilja kynnast golfíþróttinni. Undirstöðuatriðin í sveiflu, púttum og vippum verða kennd (grip, staða, sveifla) auk þess að farið verður í skemmtilega leiki. Jóhanna Guðrún Jónasdóttir verður að leiðbeina ásamt Þórði. Námskeiðið er alls 4 klukkustundir og er hámark 16 krakkar. Námskeiðið fer fram laugardag og sunnudag frá klukkan 11-13. Skráning á netfangið golfkennslatrg@gmail.com. Námskeiðið kostar 5.000 krónur.

Hópkennslan og einkakennsla er í 55 mínútur fyrir 1-4 manns. Hámarksfjöldi í hópkennslu eru fjórir nemendur. Eitt fast verð, 10.000 krónur, fyrir kennslustund óháð fjölda. Nemendur þurfa ekki að eiga kylfur. Hóp- og einkakennsla er í boði föstudag og laugardag frá klukkan 18-21. Skráning á netfangið golfkennslatrg@gmail.com.

Æfðu eins og atvinnukylfingur er námskeið fyrir kylfinga sem vilja bæta leik sinn o glæra að æfa markvisst. Farið verður í teighögg, járnhögg og stutta spilið. Kylfingar munu læra frammistöðuæfingar sem munu skila sér í betra skori út á golfvelli. Að auki verður farið yfir í leikskipulag, ákvarðanatöku og andlega þátt leiksins. Námskeiðið er alls 5 klukkustundir og er lágmark þrír en hámark sex manns. Námskeiðið kostar 15.000 krónur og fer fram laugardag og sunnudag frá klukkan 15:15-17:45. Skráning á netfangið golfkennslatrg@gmail.com.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga