Lúsmý. Mynd: visindavefur.is
Lúsmý. Mynd: visindavefur.is
Fréttir | 25. júní 2020 - kl. 10:02
Lúsmý komið í Húnavatnssýslur

Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Gísla Má Gíslason, prófessor í líffræði við Háskóla Íslands, um lúsmýið sem er að angra fólk hér á landi og þá helst á Suðurlandi og Suðvesturlandi. Hann segir að nokkuð hafi borið á lúsmýi í sumar og að það hafi verið nokkuð áberandi frá Borgarfirði og austur í Fljótshlíð. Sjálfur var hann var við það í Húnavatnssýslum og í fyrra bárust fregnir af lúsmýi í Eyjafirði.

Lúsmý þrífst vel nálægt lækjum og vötnum. Lirfurnar lifa í vatni og fullorðnu dýrin herja á spendýr. Þau eru mjög lítil, vart nema 1-2 millimetrar að stærð.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga